Þrír Keflvíkingar í U-17 ára hópnum
Keflavík á þrjá leikmenn í úrtakshópi U-17 ára landsliðs karla sem verður við æfingar 12. og 13. júlí. Þorlákur Árnason, þjálfari liðsins, hefur valið 30 leikmenn til æfinga og þar á meðal eru Keflvíkingarnir Sindri Kristinn Ólafsson, Anton Freyr Hauksson og Fannar Orri Sævarsson. Þeir eru allir fæddir árið 1997 og leika með 3. flokki.
Við óskum piltunum okkar góðs gengis á landsliðsæfingunum.