Fréttir

Þrjár í úrtakshópum
Knattspyrna | 7. mars 2014

Þrjár í úrtakshópum

Una Margrét Einarsdóttir, Aníta Lind Daníelsdóttir og Stígheiður Sól Einarsdóttir sem allar leika með 3. flokki stúlkna RKV munu taka þátt í úrtaksæfingum hjá KSÍ um helgina.

Þær Una Margrét og Stígheiður Sól æfa með U-17 ára hópnum og Aníta Lind með U-16 ára.

Það er greinilegt að mikill uppgangur er í stúlknaboltanum um þessar mundir sem er vel.

Á myndinni með fréttinni er Una Margrét sem áður hefur tekið þátt í æfingum yngri landsliða.