Þróttur - Keflavík á sunnudag kl. 17:00
Sunnudaginn 20. september leika Keflavík og Þróttur í 21. og næstsíðustu umferð Pepsi-deildarinnar. Leikurinn fer fram á Valbjarnarvelli í Laugardal og hefst kl. 17:00. Leikurinn hefur lítið að segja fyrir liðin; Keflavík siglir þennan margfræga lygna sjó um miðja deild en Þróttarar eru þegar fallnir. Fyrir leikinn er Keflavík í 5. sæti deildarinnar með 29 stig en Þróttur í 12. og neðsta sætinu með 12 stig. Dómari leiksins verður Valgeir Valgeirsson, aðstoðardómarar hans verða Smári Stefánsson og Guðmundur Ársæll Guðmundsson og Eyjólfur Ólafsson er eftirlitsmaður KSÍ.
Keflavík og Þróttur hafa mæst 27 sinnum efstu deild, fyrst árið 1959. Keflavík hefur unnið 13 leiki, Þróttarar hafa unnið 5 leiki en 9 sinnum hefur orðið jafntefli í leikjum liðanna. Markatalan er 52-42 fyrir Keflavík. Stærsti Keflavíkursigurinn er 8-1 árið 1959 og það er jafnframt mesti markaleikur liðanna. Stærsti sigur Þróttar var 5-1 sigur í Keflavík árið 1998. Átta leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Þrótti í efstu deild, Hörður Sveinsson hefur skorað fjögur mörk, Magnús Þorsteinsson, Símun Samuelsen og Guðmundur Steinarsson tvö og þeir Stefán Örn Arnarson, Brynjar Örn Guðmundsson, Guðjón Árni Antoníusson og Hólmar Örn Rúnarsson hafa skorað eitt mark hver.
Liðin hafa leikið 13 leiki í næstefstu deild, þann fyrsta árið 1956 þegar Keflavík lék í fyrsta sinn á Íslandsmótinu. Keflavík hefur unnið 9 þessara leikja og Þróttur 3 en fyrsta leiknum lauk með jafntefli. Markatalan er 41-17 fyrir Keflavík.
Keflavík og Þróttur hafa leikið 5 leiki í bikarkeppninni, fyrst árið 1961 og síðast árið 2007. Keflavík hefur unnið 4 leikjanna en Þróttur hefur einu sinni slegið Keflavík út úr bikarkeppninni. Markatalan í þessu leikjum er 14-11 fyrir Keflavík.
Keflavík og Þróttur mættust fyrr í sumar í 10. umferð deildarinnar og fór sá leikur fram á Sparisjóðsvellinum í Keflavík. Okkar menn unnu þar 3-2 sigur. Stefán Örn Arnarson, Magnús Þorsteinsson og Hörður Sveinsson gerðu mörk Keflavíkur en Magnús Már Lúðvíksson og Haukur Páll Sigurðsson skoruðu fyrir gestina.
Nokkrir Keflvíkingar hafa komið við sögu í Þrótti í gegnum árin. Þeir Adolf Sveinsson og Bjarki Freyr Guðmundsson hafa leikið með báðum liðum og Gunnar Oddsson var þjálfari Þróttar fyrri part sumars. Eins og flestir muna var Gunnar leikmaður og þjálfari Keflavíkur þegar liðið varð bikarmeistari árið 1997 og þá léku Adolf og Bjarki með liðinu.
Úrslit í leikjum Þróttar og Keflavíkur á heimavelli Þróttara hafa orðið þessi í efstu deild:
2008 |
Þróttur - Keflavík |
3-2 | Guðjón Árni Antoníusson Hólmar Örn Rúnarsson | ||
2005 |
Þróttur - Keflavík |
2-2 | Hörður Sveinsson Guðmundur Steinarsson | ||
1998 |
Þróttur - Keflavík |
1-0 | |||
1985 |
Þróttur - Keflavík |
1-0 | |||
1984 |
Þróttur - Keflavík |
1-2 | Einar Ásbjörn Ólafsson Sigurður Björgvinsson | ||
1983 |
Þróttur - Keflavík |
2-1 | Gísli Eyjólfsson | ||
1980 |
Þróttur - Keflavík |
1-1 | Óli Þór Magnússon | ||
1979 |
Þróttur - Keflavík |
0-4 | Sigurbjörn Gústavsson Ragnar Margeirsson Þórður Karlsson Kári Gunnlaugsson | ||
1978 |
Þróttur - Keflavík |
1-2 | Sigurður Björgvinsson Einar Ásbjörn Ólafsson | ||
1976 |
Þróttur - Keflavík |
1-2 | Rúnar Georgsson Sigurður Björgvinsson | ||
1966 |
Þróttur - Keflavík |
1-1 | Jón Jóhannsson | ||
1964 |
Þróttur - Keflavík |
1-2 | Sigurður Albertsson Jón Ólafur Jónsson | ||
1959 |
Þróttur - Keflavík |
1-1 | Hafsteinn Guðmundsson |