Fréttir

Knattspyrna | 1. júní 2008

Þróttur - Keflavík á sunnudag kl. 19:15

Þróttur og Keflavík leika í 5. umferð Landsbankadeildarinnar sunnudaginn 1. júní.  Leikurinn fer fram á Valbjarnarvelli í Laugardal og hefst kl. 19:15.  Dómari leiksins verður Örvar Sær Gíslason, aðstoðardómarar hans verða Einar K. Guðmundsson og Oddbergur Eiríksson og Eyjólfur Ólafsson er eftirlitsmaður KSÍ. 

Keflavík og Þróttur hafa mæst 24 sinnum efstu deild, fyrst árið 1959.  Keflavík hefur unnið 11 leiki, Þróttarar hafa unnið 4 leiki en 9 sinnum hefur orðið jafntefli í leikjum liðanna.  Markatalan er 42-27 fyrir Keflavík.  Stærsti Keflavíkursigurinn er 8-1 árið 1959 og það er jafnframt mesti markaleikur liðanna.  Stærsti sigur Þróttar var 5-1 sigur í Keflavík árið 1998.  Þrír leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Þrótti í efstu deild en þau mörk komu öll í lekikjum liðanna árið 2005 þegar Þróttur lék síðast í efstu deild.  Þá skoraði Hörður Sveinsson þrjú mörk og þeir Guðmundur Steinarsson og Símun Samuelsen eitt hvor.

Keflavík og Þróttur hafa leikið 5 leiki í bikarkeppninni, fyrst árið 1961 og síðast í fyrra.  Keflavík hefur unnið 4 leikjanna en Þróttur hefur einu sinni slegið Keflavík út úr bikarkeppninni.  Markatalan í þessu leikjum er 14-11 fyrir Keflavík.

Liðin léku síðast í Landsbankadeildinni árið 2005.  Liðin gerðu jafntefli á heimavelli Þróttar, 2-2.  Hörður Sveinsson og Guðmundur Steinarsson skoruðu fyrir Keflavík í þeim leik.  Seinni leiknum í Keflavík lauk með 3-2 sigri Keflavíkur en þar skoraði Hörður tvö mörk og Símun Samuelsen eitt.

Það þarf varla að taka fram að þjálfari Þróttara er Keflvíkingurinn Gunnar Oddsson og með liðinu leika tveir fyrrverandi leikmenn Keflavíkur, þeir Adolf Sveinsson og Bjarki Freyr Guðmundsson.  Eins og flestir muna var Gunnar leikmaður og þjálfari Keflavíkur þegar liðið varð bikarmeistari árið 1997 og þá léku Adolf og Bjarki með liðinu. 

Úrslit í leikjum Þróttar og Keflavíkur á heimavelli Þróttara hafa orðið þessi:

2005

Þróttur - Keflavík

2-2 Hörður Sveinsson
Guðmundur Steinarsson
1998

Þróttur - Keflavík

1-0
1985

Þróttur - Keflavík

1-0
     1984    

Þróttur - Keflavík

1-2   Einar Ásbjörn Ólafsson 
Sigurður Björgvinsson
  1983

Þróttur - Keflavík

2-1   Gísli Eyjólfsson
  1980

Þróttur - Keflavík

1-1   Óli Þór Magnússon
1979

Þróttur - Keflavík

0-4 Sigurbjörn Gústafsson 
Ragnar Margeirsson 
Þórður Karlsson 
Kári Gunnlaugsson
  1978

Þróttur - Keflavík

1-2   Sigurður Björgvinsson
Einar Ásbjörn Ólafsson
  1976

Þróttur - Keflavík

1-2   Rúnar Georgsson
Sigurður Björgvinsson
  1966

Þróttur - Keflavík

1-1   Jón Jóhannsson
1964

Þróttur - Keflavík

1-2 Sigurður Albertsson 
Jón Ólafur Jónsson
1959

Þróttur - Keflavík

1-1 Hafsteinn Guðmundsson