Til stuðningsmanna Keflavíkur
Kæru stuðningsmenn Keflavíkur,
Nú er komið að tímamótum á mínum fótboltaferli. Eins og er orðið ljóst er ég á förum frá Keflavík og mun ganga til liðs við KR. Mig langar að þakka öllum þeim sem koma að Keflavíkurliðinu fyrir frábært samstarf og stuðning á undanförnum árum.
Tími minn hjá Keflavík hefur verið mjög viðburðaríkur. Ég hef spilað með Keflavík alla mín tíð og var þessi ákvörðun því virkilega erfið. Að sjálfsögðu búa margar ástæður að baki þess að ég hef ákveðið að fara frá Keflavík og ákvörðunin var ekki tekin á einni nóttu. Meginástæðan er að ég leita að nýjum áskorunum og nýju umhverfi. Með því tel ég mig geta öðlast meiri reynslu og þekkingu sem mun hjálpa mér að bæta mig sem knattspyrnumann og taka næstu skref á mínum ferli. Eins og hjá flestum fótboltamönnum leitar hugur minn út og er það minn draumur að verða atvinnumaður í fótbolta. Það er því fyrst og fremst von mín að með þessari breytingu nái ég að taka þau skref sem til þarf til að láta drauminn rætast.
Keflavík er frábær klúbbur og skiljum við í góðu. Keflavíkurhjartað mun að sjálfsögðu slá áfram þó svo að nú sé kominn tími fyrir mig að halda annað. Ég óska Keflavík alls hins besta í framtíðinni og hlakka til að spila fyrir félagið aftur síðar.
Ég kveð Keflavík sáttur og vona ég að aðstandendur og stuðningsmenn liðsins skilji og virði þessa ákvörðun mína. Takk allir fyrir frábæran tíma. Sjáumst á vellinum næsta sumar.
Jónas Guðni Sævarsson