Tímamót hjá Guðjóni, Jóhanni og Guðmundi
Leikurinn gegn Fylki á dögunum var tímamótaleikur hjá Garðbúunum í liði Keflavíkur, þeim Guðjóni Antoníussyni og Jóhanni Guðmundssyni. Guðjón lék þá sinn 100. deildarleik fyrir Keflavík en hann lék fyrst í deildinni árið 2002. Guðjón hefur skorað sjö mörk í leikjunum hundrað en 17 leikjanna voru í B-deildinni en 83 hafa komið í efstu deild. Þess má geta að Guðjón er búinn að skora 4 mörk í sumar í deild og bikar og er næstmarkahæsti leikmaður Keflavíkur sem hlýtur að teljast ágætisárangur hjá bakverði.
Leikurinn gegn Fylki var 50. deildarleikur Jóhanns en sá 49. var gegn ÍA þann 29. september árið 1997. Það liðu því tæp 11 ár milli leikja hjá Jóhanni! Jóhann hefur skorað 13 mörk fyrir Keflavík í þessum 50 deildarleikjum.
Guðmundur fyrirliði Steinarsson skoraði tvö mörk gegn Fylki en seinna markið var 57. mark Guðmundar fyrir Keflavík í efstu deild. Hann er því orðinn jafn Óla Þór Magnússyni í öðru sæti yfir markahæstu leikmenn félagsins í efstu deild. Þar trónir Steinar nokkur Jóhannsson á toppnum með 72 mörk þannig að drengurinn á ennþá eftir 15 mörk í þann gamla. Guðmundur er kominn með 161 leik í efstu deild og er orðinn 6. leikjahæsti leikmaður Keflavíkur. Fyrir ofan hann eru Sigurður Björgvinsson með 214 leiki, Þorsteinn Bjarnason (180), Gunnar Oddsson og Óli Þór Magnússon (177) og Gestur Gylfason með 172 leiki.
Þórarinn Kristjánsson hefur einnig verið að skríða upp markaskoraralistann. Seinna mark hans gegn Fram á dögunum var 50. mark Þórarins í efstu deild en tvö markanna skoraði hann fyrir Þrótt. Hann er því kominn með 48 mörk fyrir Keflavík og er aðeins einu marki á eftir Ragnari heitnum Margeirssyni sem er í 4. sæti yfir þá sem hafa skorað flest mörk fyrir Keflavík í efstu deild.
Guðjón, Jóhann og Guðmundur.
(Mynd: Jón Örvar)