Tippari 5. umferðar - Gunnar Oddsson
Gunnar Oddsson tók að sér að tippa fyrir fimmtu umferð og hér á eftir koma hans svör. Njótið vel.
Hvernig fannst þér knattspyrnan í fyrstu umferðum Íslandsmótsins?
Knattspyrnan búin að vera ágæt og er ég sáttur við mína menn.
Einhver úrslit sem komu þér á óvart í síðustu umferð?
Skaginn slappur á heimavelli, þeir þurfa að fá skaðabætur út af Hvalfjarðargöngunum, það er auðveldara að fara þangað og spila. Maður vann þarna sjaldan þegar ég var í þessu.
Hvaða leikmaður okkar var bestur á móti Þrótti?
Sá ekki leikinn á móti Þrótti, var með Reyni í bikarnum.
Hvernig spáir þú leikjunum í næstu umferð?
Fram tekur ÍA 2-1.
FH rúllar Þrótti upp 3-0.
KR tekur ÍBV 0-2 í Eyjum.
Grindavík kemur á óvart og vinnur Fylki 1-3 í Árbænum.
Keflavík vinnur Val 3-2 í stórskemmtilegum leik.
Er eitthvað lið sem hefur komið þér á óvart?
Já, KR-ingarnir hafa ekkert sýnt, Valsmenn komið sterkir inn með baneitraðan Gumma Ben í broddi fylkingar og svo reiknaði ég ekki með okkur svona frískum í byrjun það var lítið sem gaf það til kynna stuttu fyrir mót. Annað hefur verið eftir bókinni.
Hvað viltu sjá gerast hjá Keflavíkurliðinu í sumar og hjá stuðningsmönnum?
Ég er sáttur við umgjörðina hjá okkur, hún hefur lagast stórlega og það hleypir lífi í leikmenn og stuðningsmenn. Það eru fleiri að láta gott af sér leiða hjá okkur núna. Þetta er ekki einkahlutafélag heldur fá menn að taka þátt í geiminu.
Eftirminnilegasta atvikið á Keflavíkurleik?
Þegar ég var leikandi þá var gaman að vinna bikarinn 1997, skemmtilegir strákar sem gaman var að vinna með. Sérlega minnistætt þegar Kiddi Guðbrands tók Brolifagnið eftir síðustu vítaspyrnuna.
Hvaða samherjar þínir eru eftirminnilegastir?
Margir samherjar eftirminnilegir. Fyrstur kemur upp í hugann Siggi Björgvins, það var gott að spila með Sigga, baráttumaður númer eitt. Raggi Margeirs var ógleymanlegur, bæði sem spilari og ekki síst sem félagi. Við Óli Þór náðum oft vel saman. Tanasic var finn spilari. S teini Bjarna og Valþór voru traustir þegar ég var að stíga mín fyrstu spor. Úr öðrum liðum þá vil ég nefna Pétur Pétursson og Bjössa Rafns í KR, góðir spilarar og fínir félagar. Að öðrum ólöstuðum eru þetta þeir eftirminnilegustu.
Hvaða ár spáir þú að Íslandsmeistaratitillin fari á loft í Keflavík næst?
Vandi er um slíkt að spá, vonandi fljótlega. Erfitt að halda í efnilega fótboltamenn í dag.
Er einhver munur á fótboltanum í dag og þegar þú varst að raða inn boltunum? Umgjörðin eða spilið sjálft?
Meiri hraði í dag og menn í betra formi. Kannski svolítið einsleit flóra sem spilar bolta í dag, ég held að það vanti villikettina í þetta? Þetta er á stundum bragðlaust en menn eru flinkari og betur þjálfaðir, það er alveg á hreinu.
Ég vill þakka Gunna kærlega fyrir
Rúnar I. Hannah
Stuðningsmannasíða Keflavíkur