Titill hjá 2. flokki
B-lið 2. flokks Keflavíkur/Njarðvíkur varð Íslandsmeistari eftir sigur á KA í úrslitaleik. Leikurinn fór fram á Blönduósi og þar urðu lokatölur 2-1. KA-menn komust reyndar yfir í leiknum snemma í seinni hálfleik en Óðinn Jóhannsson jafnaði um hæl. Það var svo Brynjar Bergmann Björnsson sem tryggði sigurinn og titilinn með marki skömmu fyrir leikslok.
Við óskum strákunum og þjálfurum þeirra til hamingju með sigurinn.
Myndirnar með fréttinni eru fengnar af Facebook-síðu flokksins.