Fréttir

Knattspyrna | 29. júní 2004

Töp hjá 4. flokki

Á sunnudag lék 4. flokkur kvenna við lið Hauka á Ásvöllum í A- og B-liðum.

A-liðið beið lægri hlut 0-1 í jöfnum leik.  Stelpurnar hafa ekki farið vel af stað og eru enn án stiga.  Það verður þó að segja að heppnin hefur heldur ekki verið á þeirra bandi en það styttist í fyrsta sigurinn.

B-liðið beið einnig lægri hlut 1-6 og voru þær ekki að spila eins og þær geta.  Eftir að hafa lent undir 0-2 gáfust þær hreinlega upp en náðu þó að setja eitt mark og það gerði Ingibjörg Íris Ásgeirsdóttir.

4. flokkur kvenna, A-lið:
Haukar - Keflavík: 1-0

4. flokkur kvenna, B-lið:
Haukar - Keflavík: 6-1 (Ingibjörg Íris Ásgeirsdóttir)