Toppsætið hjá 2. flokki
Lið Keflavíkur/Njarðvíkur er komið í efsta sætið í B-deild 2. flokks eftir sigur á sameiginlegu liði Selfoss, Hamars, Ægis og Árborgar. Lokatölur urðu 2-1 en mörkin gerðu þeir Einar Þór Kjartansson og Ari Steinn Guðmundsson. Liðið er nú í efsta sæti deildarinnar með 18 stig eftir átta leiki.
B-lið 2. flokks tapaði hins vegar sínum leik gegn Sunnlendingum en sá leikur fór 1-3. Birkir Freyr Birkisson gerði mark okkar liðs.
Næst á dagskrá hjá strákunum er ferð á Akureyri um næstu helgi. A- og B-liðin leika þar bæði gegn KA á laugardaginn og A-liðið leikur síðan við Þór á sunnudag. Eftir það bíður önnur ferð norður en 2. flokkur leikur gegn KA í bikarnum föstudaginn 18. júlí.