Toppsætið í höfn eftir sigur á ÍA
Keflvíkingar sigruðu Skagamenn 2-1 í lokaleik 2. riðils Lengjubikarsins í gær og tryggðu sér þar með efsta sæti riðilsins.
Rétt áður en leikurinn hófst í Reykjaneshöllinni kom þessi líka stóri hvellur, Reykjaneshöllin nötraði svakalega og mönnum var brugðið. Landhelgisgæslan átti þarna hlut að máli eins og komið hefur fram í fréttum. Eitthvað hefur þessi hvellur farið illa í okkar menn því Garðar Bergmann Gunnlaugsson skoraði gott skallamark þegar aðeins 90 sekúndur voru á klukkunni. Okkar strákar náðu síðan yfirhöndinni og Arnór Ingvi átti þrumuskot í slá og svo aftur skot sem fór rétt yfir. Guðmundur Steinars átti síðan gott skot en rétt yfir. Ómar varði vel frá Gary Martin og undir lok hálfleiks átti Magnús Sverrir gott skot rétt framhjá marki.
Keflvíkingar byrjuðu seinni hálfleik með látum og á 48. mínútu skoraði Guðmundur Steinarsson glæsilegt mark með skoti utan vítateigs í bláhornið niðri. Eftir klukkutíma leik kom svo annað stórglæsilegt mark þegar Magnús Sverrir Þorsteinsson skoraði eftir sendingu frá Sigurbergi Elíssyni. Keflavík var mun sterkara liðið í leiknum og verðskuldaði sigurinn.
Ekki er ljóst hverjir verða mótherjar okkar í 8 liða úrslitum sem fara fram fimmtudaginn 19. apríl en riðlakeppninni lýkur um helgina.
Gregor Mohar lék sinn fyrsta leik með Keflavík og kom hann mjög vel út, greinilega snjall leikmaður.
Keflavík: Ómar Jóhannsson, Grétar Atli Grétarsson, Haraldur Freyr Guðmundsson fyrirliði, Gregor Mohar, Jóhann R. Benediktsson, Jóhann Birnir Guðmundsson, Einar Orri Einarsson, Arnór Ingvi Traustason, Frans Elvarsson, Magnús Sverrir Þorsteinsson og Guðmundur Steinarsson.
Komu inn á: Sigurbergur Elísson, Hilmar Geir Eiðsson, Ísak Örn Þórðarson og Magnús Þór Magnússon.
Aðrir á bekk: Árni Freyr Ásgeirsson, Daníel Gylfason og Samúel Kári Friðjónsson.
Magnús Sverrir og Guðmundur skoruðu glæsileg mörk.
Byrjunarliðið í leiknum.