Tóti á afmæli...
Þann 30. desember 1980 kom drengur í heiminn og í dag fagnar Þórarinn Kristjánsson 28 ára afmælinu. Þrátt fyrir ungan aldur er Tóti orðinn einn reynslumesti leikmaður Keflavíkur frá upphafi; hann er kominn með 149 leiki í efstu deild og er í 9. sæti yfir leikjahæstu leikmenn í sögu félagsins. Drengurinn ber aldurinn vel og á jafnvel nokkur ár eftir í boltanum. Við óskum Tóta til hamingju með daginn.