Tveir æfingaleikir í vikunni
Keflavík leikur tvo æfingaleiki í vikunni og verða þeir báðir í Reykjaneshöllinni. Á miðvikudag verður leikið gegn Þrótti kl. 17:40 og á laugardag er komið að leik gegn ÍBV sem hefst kl. 10:00. Okkar menn hafa þegar leikið einn æfingaleik og sigruðu þá ÍR 3-1. Viktor Smári, Guðmundur og Jóhann Birnir gerðu mörkin í þeim leik.