Tveir Keflvíkingar í U-17 ára
Tveir Keflvíkingar eru í U-17 ára landsliði karla sem leikur á Undirbúningsmót UEFA í Wales. Okkar fulltrúar eru þeir Anton Freyr Hauksson og Fannar Orri Sævarsson. Þeir eru fæddir árið 1997 eins og allir leikmenn í hópnum og leika því með 3. flokki.
Liðið verður við æfingar 5. og 6. apríl og heldur svo á mótið sem verður í Wales 11.-14. apríl. Mótherjar Íslands þar verða Færeyjar, N-Írland og Wales.
Við óskum Anton, Fannari og félögum þeirra góðs gengis.