Tveir leikir á laugardag
Karla- og kvennalið Keflavíkur eiga bæði leik á laugardaginn og þeir fara báðir fram í Reykjaneshöllinni.
Fyrri leikurinn er fyrir hádegi en kl. 10:30 taka strákarnir á móti FH. Þetta er leikur um 3. sæti í Fótbolta.net-mótinu en þessi lið enduðu í 2. sæti í sitt hvorum riðlinum í mótinu. Dómari í þessum leik veðrur Pétur Guðmundsson og aðstoðardómarar þeir Frosti Viðar Gunnarsson og Andri Vigfússon.
Kl. 14:00 er svo komið að leik í Faxaflóamóti kvenna en þá mætast Keflavík og Víkingur Ólafsvík. Okkar stelpur hafa þegar leikið tvo leiki í riðlinum en þetta er fyrsti leikur Ólsara.
Við hvetjum að sjálfsögðu Keflvíkinga til að mæta og styðja okkar fólk.