Tveir leikir í Lengjubikarnum um helgina
Keflavík leikur gegn KA í Lengjubikarnum á laugardaginn. Leikurinn verður í Reykjaneshöllinni kl. 16:00. Dómari leiksins verður Guðmundur Ársæll Guðmundsson og aðstoðardómarar þeir Smári Stefánsson og Þorsteinn Sigurmundason. Eftir tap gegn Víkingum í fyrsta leiknum í riðlinum hafa strákarnir okkar unnið þrjá leiki í röð gegtn Stjörnunni, Tindastól og ÍBV. Liðið er nú í 3. sæti riðilsins með 9 stig.
Kvennaliðið byrjar keppni í Lengjubikarnum á sunnudaginn. Stelpurnar leika þá gegn Sindra í Reykjaneshöllinni kl. 12:00. Auk þessara tveggja liða leika Fjölnir, Fram og ÍA í riðlinum.
Við hvetjum auðvitað stuðningsmenn til að mæta á leikina um helgina og hvetja okkar fólk.