Fréttir

Knattspyrna | 9. mars 2012

Tveir leikir um helgina

Það verður nóg um að vera um þessi helgi en karla- og kvennaliðin okkar leika bæði um helgina.  Stelpurnar byrja á laugardaginn og leika þá gegn liði HK/Víkings í Faxaflóamótinu.  Leikurinn verður í Reykjaneshöllinni kl. 16:00.  Keflavík hefur unnið tvo og tapað einum leik í riðlinum en gestirnir hafa unnið annan leikja sinna en tapað hinum.  Á sunnudaginn er svo komið að strákunum en karlaliðið leikur gegn Tindastóli í Lengjubikarnum.  Sá leikur verður einnig í Reykjaneshöllinni kl. 16:00.  Okkar lið tapaði gegn Víkingum en unnu svo Stjörnuna en Norðanmenn hafa tapað báðum leikjum sínum til þessa.  Við hvetjum svo stuðningsmenn til að kíkja í Reykjaneshöllina um helgina og styðja okkar fólk.