Fréttir

Tveir leikir um helgina
Knattspyrna | 18. janúar 2013

Tveir leikir um helgina

Meistaraflokkar karla og kvenna eiga báðir leik um helgina og báðir leikirnir eru gegn Hafnarfjarðarfélögunum.

Strákarnir leika gegn FH í Fótbolta.net-mótinu.  Leikurinn er í Reykjaneshöllinni á laugardag kl. 10:00.  Okkar menn unnu Selfoss í fyrsta leik sínum í riðlinum en FH-ingar sigruðu Stjörnuna.  Dómari leiksins verður Sigurður Óli Þórleifsson og aðstoðardómarar hans Andri Vigfússon og Magnús Jón Björgvinsson.

Kvennaliðið leikur annan leik sinn í Faxaflóamótinu og heimsækir Hauka í Hafnarfjörðinn.  Leikurinn verður á Schenkervellinum á Ásvöllum og hefst kl. 13:00.  Okkar lið gerði 3-3 jafntefli við Álftanes í fyrsta leik sínum.

Svo er bara að hvetja stuðningsmenn til að mæta á völlinn og styðja okkar fólk.