Tveir ungir knattspyrnumenn skrifuðu undir
Tveir ungir knattspyrnumenn skrifuðu undir tveggja ára samning við Keflavík þann 2 maí s.l. Þetta eru þeir Tómas Óskarsson og Samúel Þór Traustason en báðir leika þeir með 2 flokki. Þeir eru báðir uppaldir hjá Keflavík og eru að koma upp í gegnum unglingastarfið.
Á myndinni eru þeir félagar ásamt Jóni Ben formanni knattspyrnudeildar.