Tveir útileikir um helgina
Meistaraflokkur kvenna verður á faraldsfæti um helgina og leikur þá tvo leiki á Norðurlandi. Liðið hefur þegar leikið tvo leiki á A-riðli 1. deildar en stelpurnar byrjuðu á að tapa fyrir Haukum á útivelli en gerðu svo 2-2 jafntefli við Tindastól á heimavelli.
Fyrri leikurinn verður gegn Hömrunum laugardag en sá leikur verður í Boganum á Akureyri kl. 16:00. Lið Hamranna hefur tapað öllum fjórum leikjum sínum í riðlinum til þessa.
Seinni leikur helgarinnar verður á sunnudag en þá leika stelpurnar gegn Tindastóli á Hofsósvelli kl. 14:00. Tindastóll er með fimm stig eftir þrjá leiki í riðlinum.