Tyrklandspistill 3 - Á skólabekk
Þó að fótbolti og æfingar séu í fyrirrúmi hjá Keflavíkurliðinu í Tyrklandi þessa dagana þarf líka að hugsa um fleira. Það er ekkert gefið eftir þegar kemur að lærdómnum hjá ungu strákunum í liðinu hjá okkur. Strax eftir æfingu í morgun tók Kristján þjálfari/kennari þá í tíma og Einar Aðalbjörnsson fararstjóri/skólastjóri passaði upp svo á það að þeir yrðu ekki fyrir truflun. Þeir sem voru teknir í kennslustund voru Högni, Magnús Þórir, Bessi, Sigurbergur og Einar Orri.
Áhuginn skín úr hverju andliti!
Þetta er skítlétt!
Kennarinn fer létt með þetta, nemandinn ekki eins viss.
Kristján les yfir mannskapnum.
Skólastjórinn fylgist ákveðinn með.