Fréttir

Knattspyrna | 1. apríl 2008

Tyrklandspistill 4 - Tap gegn Rússum

Eftir rólega æfingu í morgun lékum við gegn sterku liði Tyumen frá Rússlandi.  Leikurinn hófst kl. 16:00 að staðartíma.  Okkar menn voru seinir í gang og ógnuðu Rússarnir verulega strax á fyrstu mínútunum.  Ómar þurfti að taka á öllu sínu til að halda markinu hreinu og sýndi mikið öryggi í leik sínum.  Hann réð þó ekki við bylmingsskot framherja Tyumen á 22. mínútu sem hafði sloppið í gegn eftir herfileg mistök í vörn okkar, 0-1.  Þetta mark virkaði sem vekjaraklukka á Keflavíkurliðið því allt spil okkar varð markvissara og öflugra.  Á 27. mínútu áttum við okkar  glæsilegustu sókn í leiknum sem endaði með frábærri  fyrirgjöf frá Sigurbergi af hægri kantinum inn á Hallgrím sem átti gott skot að marki en markvörður Tyumen varði á undraverðan hátt.  Boltinn skoppaði í markteignum en Rússarnir urðu fyrstir á boltann og tókst að hreinsa í horn.  Stórkostleg tilþrif hjá öllum.  Á 35. mínútu kom önnur góð sókn okkar manna og eftir góða sendingu Guðmundar í gegnum vörn Rússanna tókst Símun að koma skoti á markið en aftur varði markvörður Tyumen.  Rétt fyrir lok hálfleiksins átti Guðmundur óvænt skot af 35 metra færi þar sem boltinn sleikti utanverða stöngi og hafnaði í hliðarnetinu.  Staðan 0-1 í leikhléi. 

Lið Keflavíkur tók síðan völdin strax í sínar hendur í upphafi seinni hálfleiks og sköpuðu ágætis hálffæri.  Það var því sem köld vatnsgusa í andlit okkar er Rússarnir juku muninn á 12. mínútu seinni hálfleiks með sinni fyrstu sókn í hálfleiknum, 0-2.  Okkar menn voru þó ekki af baki dottnir og skoruðu strax í næstu sókn þegar Hallgrímur kom knettinum í markið en einhverra hluta vegna var markið dæmt af vegna meintrar rangstöðu. Tveimur mínútum síðar komst Símun síðan á bakvið hafsentapar Tyumen en skot hans fór yfir.  Eftir þessa orrahríð okkar manna komu Rússarnir aftur inn í leikinn og sköpuðu sér nokkur hálffæri.  Seinustu 15 mínútur leiksins voru síðan heldur bragðdaufar þar til á 43. mínútu að Bessi stal boltanum af öðrum hafsenti Rússanna (maður yfir 2 metrar á hæð!!!), geystist í átt að vítateignum og átti gott skot sem fór rétt framhjá...  Lokatölur 0-2 Tyumen í vil.  

Leikurinn var alls ekki alslæmur, fyrra mark andstæðingana var gefins og jafnframt hefðum við mátt nýta allavega eitt af okkar færum.  Allir leikmenn sem voru valdir  í leikinn tóku þátt í honum.  Dómari leiksins Þóroddur Hjaltalín frá Akureyri  vakti athygli fyrir verulega góða frammistöðu og honum til aðstoðar voru þeir Einar Guðmundsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson hlaupandi á hliðarlínunum. 

Að sjálfsögðu tókst að láta einn leikmann hlaupa Apríl og varð Magnús Matthíasson fyrir barðinu á leikmannahópnum í þetta sinn!!!  Nú tekur við kvöldmatur og svo seinna í kvöld áhorf á leiki í Meistaradeildinni.

Keflavík: Ómar, Gaui, Kenneth, Einar Orri, Maggi Matt, Sigurbergur, Haddi, Jón Gunnar, Símun, Gummi og Högni.
Símon, Sigurbjörn og Bessi komu inn á sem varamenn.

Pistill og myndir: Jón Örvar.