Fréttir

Knattspyrna | 29. júní 2005

Umfjöllun DV á villigötum

Þeir ríða ekki við einteyming blaðamenn á DV þessa dagana.  Þeir hafa í sumar fjallað um knattspyrnuna eins og Rómverjar forðum fjölluðu um skylmingaþræla.  Við höfum unnið að því hörðum höndum, forystumenn knattspyrnunnar í landinu, að bæta umgjörð fótboltans almennt og sérstaklega bætt umgjörð leikja okkar liða. Með það að markmiði, eins og í öllum öðrum málum er varða bættan hag og framgöngu knattspyrnunnar í landinu, erum við samherjar.  Við höfum starfað með forystu KSÍ eins og einn maður að bæta umgjörð fótboltans og fá fleiri áhorfendur á völlinn.  Fjölskylduklúbbar, glaðværð og fjör með tónlistarmönnum og hressum stuðningsmönnum á völlunum hefur dregið að nýja áhorfendur og 100.000 áhorfenda takmarkið er í augsýn. Ég segi það stundum við kollega mína að einu skiptin sem við erum andstæðingar eru þær 90 mínútur þegar lið okkar mætast í leik.  Eftir leiki setjast menn niður og ræða málin, oftast hvað sé hægt að gera betur.  Þrátt fyrir samkeppni liða um stig, leikmenn og árangur vinnur forystufólk hreyfingarinnar heiðarlega gagnvart hvort öðru.  Í vetur varð ég strax var að fjölmiðlar ætluðu sér meiri og „betri“ umfjöllun um knattspyrnuna.  Vissulega hef ég tekið eftir betri og líflegri umfjöllun.  Ég gagnrýndi Morgunblaðið í fyrra fyrir of fáar myndbirtingar að mínu mati, þar á bæ eru bæði fleiri myndir með umfjöllunum um leiki sem er fín og lífga mikið upp á íþróttablað Morgunblaðsins.  Þá eru áhorfendatöflur, einkunnagjöf, skot á mark og fjölmargar aðrar töflur og upplýsingar kærkomin viðbót fyrir nýja og ört fjölgandi lesendum Morgunblaðsins.  Fréttablaðið fjallar mun nákvæmar og meira um leikina í Landsbankadeild en það gerði sl. sumar er það vel.  Útvarpsstöðvar og sjónvarp standa sig vel.  Sérstaklega verð ég að minnast á Sýn sem hefur staðið sig frábærlega í umfjöllun um Landsbankadeildina og lyftir umræðunni og allri umfjöllun upp á hærri stall. 

Vonbrigðin eru DV.  Þeir vilja vera öðruvísi, en með því að gera þennan frábæra leik að stríði þar sem leikmönnum er líkt við rudda og misindismenn.  Þar sem pústrar eru orðnir ofbeldisverk og dómarar böðlarnir.  Við höfum vissulega séð ljót brot og slys það sem af er þessu tímabili og þar höfum við Keflvíkingar ekki misst af neinu.  Auðvitað falla orð í hita leiksins, en við höfum ekki óskað eftir umfjöllun í anda DV, tökum á okkar slysum og óförum innan hópsins.  Það er ekki okkar háttur að ráðast að leikmönnum eða dómurum eða rjúka með ásakanir á andstæðingana í fjölmiðla.  Knattspyrnan er kappsfullur leikur þar sem íþróttamenn í gríðarlegri líkamlegri þjálfun takast á og því fylgir óhjákvæmilega slysahætta án þess að um ofbeldisfull viljaverk sé að ræða eins og DV leggur málin fram.  Eðlileg umfjöllun um leikinn þar sem brotum er ekki sleppt frekar en því sem vel er gert, á fullkominn rétt á sér.  Umfjöllun þar sem kappsfull, fordómalaus knattspyrna er í fyrirrúmi hjálpar okkur til að fá enn fleiri áhorfendur á völlinn.  Þess vegna fordæmi ég umfjöllun DV um einstaka þætti leiksins sem gefa alranga mynd af þessari fallegustu íþrótt samtímans þar sem heiðarleiki og fordómalaus framkoma sigrar að lokum.  Sjáumst á vellinum.

Ásmundur Friðriksson, framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar Keflavíkur.