Fréttir

Una Margrét í U-17 ára hópi
Knattspyrna | 10. júlí 2013

Una Margrét í U-17 ára hópi

Una Margrét Einarsdóttir er fulltrúi Keflavíkur í æfingahópi U-17 ára landsliðs kvenna sem undirbýr sig úrslitakeppni fyrir úrslitakeppni Evrópumótsins sem fer fram á Íslandi í júní 2015.  Úlfar Hinriksson þjálfari liðsins valdi 30 stúlkur til æfinga en æft var í Kópavogi um helgina.

Una Margrét er fædd árið 1998 og er úr Garðinum.  Hún gekk til liðs við Keflavík í vor og leikur með 3. flokki en hefur þegar leikið með meistaraflokki í sumar þrátt fyrir ungan aldur.

Það er ánægjulegt að sjá unga stúlku úr okkar hópi taka þatt í verkefni hjá yngra landsliði Íslands og vonandi verður Una Margrét áfram með í þessu skemmtilega verkefni.