Fréttir

Una Margrét með U-17 ára á EM
Knattspyrna | 17. júní 2015

Una Margrét með U-17 ára á EM

Una Margrét Einarsdóttir verður með U-17 ára landsliði kvenna í úrslitakeppni EM sem fram fer á Íslandi 22. júní - 4. júlí.  Ísland leikur þar í riðli með Þýskalandi, Englandi og Spáni.  Úlfar Hinriksson þjálfari liðsins hefur valið þá 18 leikmenn sem taka þátt í mótinu fyrir hönd Íslands og það er auðvitað mjög ánægjulegt fyrir okkur að Una sé þar á meðal.

Una Margrét er 16 ára gömul en hún lék fyrst með meistaraflokki árið 2013 og á nokkra leiki að baki í 1. deildinni.  Hún hefur þegar leikið sjö leiki með U-17 ára landsliðinu og skorað tvö mörk í þeim leikjum.  Þess má geta að Una var fyrirliði Íslands gegn Englendingum á Norðurlandamóti í Svíþjóð á síðasta ári.

Við óskum Unu og stöllum hennar í landsliðinu góðs gengis í baráttunni framundan.  Við hvetjum fólk til að fylgjast með mótinu en hér má sjá leikina og allt um keppnina.  Fyrsti leikur Íslands verður gegn Þýskalandi á Grindavíkurvelli mánudaginn 22. júní kl. 19:00 en ókeypis aðgangur er á alla leikina.