Fréttir

Una Margrét með U-17 ára landsliðinu
Knattspyrna | 20. febrúar 2014

Una Margrét með U-17 ára landsliðinu

Una Margrét Einarsdóttir er í U-17 ára landsliðshópi sem kemur saman til æfinga um helgina.  Úlfar Hinriksson landsliðsþjálfari hefur valið hóp sem æfir í Kórnum og Egilshöll 22. og 23. febrúar.  Una Margrét er fædd árið 1998 en á þrátt fyrir ungan aldur þó nokkra leiki með meistaraflokki.  Hún hefur áður tekið þátt í æfingum með yngri landsliðum.

Við óskum Unu Margréti góðs gengis með landsliðinu.