Fréttir

Una Margrét með U-17 ára til N-Írlands
Knattspyrna | 1. apríl 2014

Una Margrét með U-17 ára til N-Írlands

Una Margrét Einarsdóttir er í U-17 ára landsliði Íslands sem tekur þátt í undirbúningsmóti UEFA í Belfast í apríl.  Um er að ræða fjögurra liða mót fyrir leikmenn fædda 1998 og síðar.  Úlfar Hinriksson landsliðsþjálfari hefur valið 18 leikmenn sem taka þátt í mótinu.  Una Margrét er fædd árið 1998 en á þrátt fyrir ungan aldur þó nokkra leiki með meistaraflokki.  Hún hefur áður tekið þátt í æfingum með yngri landsliðum.

Við óskum Unu Margréti góðs gengis með landsliðinu.