Ungir leikmenn skrifa undir
Átta leikmenn úr Íslandsmeistaraliði 3ja flokks frá síðasta sumri skrifuðu undir tveggja ára samning við Keflavík í vikunni. Þetta eru allt gríðarlega efnilegir leikmenn og miklar vonir bundnar við þá. Knattspyrnudeildin hefði getað samið við fleiri drengi úr þessum frábæra hópi leikmanna 3. flokks sem unnu bæði Íslandsmeistaratiltilinn og bikarinn en ákveðið var að taka semja við þessa leikmenn í þetta skipti. Leikmennirnir heita Arnór Ingvi Traustason, Aron Ingi Valtýsson, Ásgrímur Rúnarsson, Bergsteinn Magnússon, Davíð Guðlaugsson, Eyþór Ingi Einarsson, Lukas Malesa og Theodór Guðni Halldórsson. Með þeim á neðstu myndinni eru Zoran Daníel Ljubicic þjálfari, Smári Helgason formaður unglingaráðs og Þorsteinn Magnússon formaður Knattspyrnudeildarinnar.