Fréttir

Ungir leikmenn skrifa undir
Knattspyrna | 31. október 2014

Ungir leikmenn skrifa undir

Tveir ungir og efnilegir leikmenn, Sigurbergur Bjarnason og Hilmar Andrew McShane, hafa skrifað undir leikmannasamninga við Keflavík.  Þeir félagar eru fæddir árið 1999 og eru því yngstu leikmennirnir sem eru á samningi við félagið en þeir skrifuðu báðir undir þriggja ára samning.

Þeir Sigurbergur og Hilmar léku báðir með 3. flokki í sumar.  Sigurbergur var fyrirliði 4. flokks Keflavíkur sem varð Íslandsmeistari árið 2013 en Hilmar gekk til liðs við Keflavík á þessu ári.  Hann lék í síðasta leik Keflavíkur í Pepsi-deildinni í sumar og varð þar með yngsti leikmaður efstu deildar frá upphafi.  Sigurbergur og Hilmar voru í U-16 ára landsliði Íslands sem lék á Ólympíuleikum æskunnar í Kína í sumar og vann þar bronsverðlaun.  Piltarnir eiga ekki langt að sækja knattspyrnuáhugann en Sigurbergur er sonur Bjarna Jóhannssonar þálfara KA og faðir Hilmars er Paul McShane, fyrrum leikmaður Keflavíkur.