Unglingadómaranámskeið 21. apríl
Unglingadómaranámskeið Knattspyrnudeilda Keflavíkur og Njarðvíkur verður haldið þriðjudaginn 21. apríl. Námskeiðið verður haldið í Íþróttaakademíunni beint á móti Reykjaneshöllinni og hefst kl. 20:00. Allir þeir sem hafa skráð sig á námskeiðið eru hvattir til þess að mæta vel.
Þetta námskeið er opið öllum þeim sem hafa áhuga á því að læra knattspyrnulögin og viljum við skora á sem flesta að mæta, stelpur, stráka og foreldra.
Námskeiðið er ókeypis.
Bestu kveðjur,
Starfshópurinn „Betri dómgæsla í Reykjanesbæ“