Unnar Már með samning
Undanfarið hefur Keflavík verið að gera samninga við marga af ungu og efnilegu leikmönnum félagsins. Nú hefur Unnar Már Unnarsson bæst í hópinn og gert sinn fyrsta leikmannasamning við Keflavík sem gildir til ársins 2015. Unnar Már er varnarmaður og er fæddur árið 1994 og er á elsta ári í 2. flokki. Við bjóðum Unnar velkominn í leikmannahópinn.