Unnar og Ingi Þór þjálfa 2. flokk
Unnar Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari 2. flokks liðs Keflavíkur/Njarðvíkur og Ingi Þór Þórisson verður áfram aðstoðarþjálfari eins og undanfarin tvö ár. Ráðningin er til tveggja ára. Æfingar hjá 2. flokki hefjast í byrjun október.
Knattspyrnudeild býður Unnar velkominn til starfa og óskar þeim félögum góðs gengis.
Á myndinni að neðan eru frá vinstri Þorsteinn Magnússon formaður Knattspyrnudeildar Keflavíkur, Ingi Þór, Unnar og Leifur Gunnlaugsson framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar Njarðvíkur.