Uppgjör Fjölskylduklúbbsins
Þá er fyrsta starfsári Fjölskylduklúbbsins lokið og fór það mjög vel af stað. Það var ýmislegt gert til skemmtunar fyrir alla aldurshópa í klúbbnum. Klúbburinn var kynntur vel um vorið þar sem við fórum í 1.-6. bekk allra grunnskólanna í Keflavík og fengum með okkur skemmtilega menn en það voru þeir Ingvi Rafn, Þorsteinn og Gummi Steinars fyrirliðinn sjálfur og fannst þeim það ekki leiðinlegt. Einnig var auglýst vel í Víkurfréttum, á keflavík.is og bloggsíðunni. Meðlimir í klúbbnum voru rúmlega 100 manns á öllum aldri. Við byrjuðum sumarið á því að bjóða öllum krökkum sem komu á leikinn á móti FH í hoppukastala og voru allir ánægðir með það og skemmtu sér hoppandi vel.
Hoppukastalinn var vinsæll.
Á næstu leikjum var svo t.d. boðið á hestbak og þar var Drummerinn fremstur í flokki og krakkarnir skunduðu á eftir honum, alsælir. Svo komu félagar í bifhjólaklúbbnum Erni á Suðurnesjum og buðu krökkunum á rúntinn. Á einum leik var öllum í klúbbnum boðið í sund fyrir leik þannig að alltaf var eitthvað í gangi fyrir meðlimi. Á hverjum leik vorum við með veitingar meðlimum að kostnaðarlausu. Við grilluðum pulsur, bökuðum kökur og vöfflur, vorum alltaf með kaffi á könnunni og gos eða svala, gáfum ís og vorum með bakkelsi frá Sigurjóni bakara. Við vorum með fullt af uppákomum á leikjunum eins og happadrætti þar sem vinningarnir komu frá PUMA og Halldóri Jónssyni sem gaf PUMA snyrtivörur. Öllum krökkunum í klúbbnum stóð til boða að taka víti á Magnús Þormar og fengu þeir sem skoruðu bolta í verðlaun. Einnig buðu við meðlimum í klúbbnum afslátt á Mainz–leikinn hér heima. Á síðasta heimaleiknum toppuðum við allt með því að bjóða meðlimum í lokahóf tveimur tímum fyrir leik þar sem hoppukastali var fyrir börnin og grillað var ofan í allan mannskapinn. Þá komu allir strákarnir í meistaraflokknum ásamt þjálfara og aðstoðarmönnum og heilsuðu upp á okkur og spiluðu með krökkunum fótbolta til þess að hita sig upp fyrir leikinn. Það hafði greinilega mikla þýðingu þar sem við unnum loksins á heimavelli. Þá fengum við Ingva Rafn, sem var augljóslega ekki í leikmannahóp að þessu sinni, til að draga í happadrætti þar sem nöfn allra krakkanna í klúbbnum voru sett í pott og voru margir vinningar þar í boði. Í hálfleik var svo stóru vinningarnir dregnir út. Þeir voru 14 talsins og þar á meðal sá stóri sem var ferð fyrir fjölskylduna með Iceland Express á einn af áfangastöðum þeirra.
Happdrættisvinningarnir voru dregnir út þrátt fyrir kuldann.
Af því sem fólki sem hefur komið að máli við okkur þá hafa allir verið ánægðir með klúbbinn og viljum við þakka öllum þeim sem voru með okkur í klúbbnum í sumar. Vonumst eftir að allir verði með aftur næsta vor og að fleiri bætist í þennan góða hóp stuðningsmanna Keflavíkur. Bestu þakkir fyrir frábært knattspyrnusumar og hlökkum til næsta vors. Hvetjum alla til að fylgjast vel með liðinu okkar í vetur.
Bestu kveðjur,
Hjördís, Inga Ósk, Gunna og Gulli.
Fulltrúum stuðningsklúbba Keflavíkur var þakkað á lokahófinu.
Kjarnorkukvendin Hjördís og Inga Ósk.