Úrslitakeppni 3. flokks
Úrslitakeppni Íslandsmóts 3. flokks kvenna í 7 manna liðum fór fram á Iðavöllum um helgina. Þátttökulið í úrslitunum voru Keflavík, ÍA, KS og Leiknir Fáskrúðsfirði. Lið ÍA var með langbesta liðið í þessari úrslitakeppni, sigruðu andstæðinga sín örugglega og lyftu meistaratitlinum á loft í lok móts. Keflavík lenti í þriðja sæti en þær þurftu að sigra síðasta leik sinn með einu marki til að taka annað sætið á betri markatölu en KS. Þrátt fyrir að sækja nánast látlaust að marki Leiknis F. þá vildi knötturinn einfaldlega ekki í markið. Marksúlurnar voru nokkrum sinnum fyrir okkur og eins náðu Leiknisstelpur að bjarga á línu í tvígang. Í lok móts afhentu síðan Ásdís þjálfari meistaraflokks og Nína Ósk liði ÍA bikarinn og KS silfrið. Keflavík óskar ÍA til hamingju með titilinn.
Lið Keflavíkur sem spilaði í úrslitakeppninni um helgina.
Aftari röð frá vinstri: Elis Kristjánsson þjálfari, Kristín Magnúsdóttir, Fanney Kristinsdóttir,
Sigurbjörg Auðunsdóttir, Karen Herjólfsdóttir, Jóna Stefánsdóttir.
Neðri röð frá vinstri: Anna Rún Jóhannsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir,
Ingey Arna Sigurðardótir, Sonja Ósk Sverrisdóttir, Justyna Wróblewska.