Úrslitakeppni 3. flokks: Keflavík - Höttur í dag á Aðalvellinum
Piltarnir í 3. flokki hafa staðið sig feykivel í sumar og urðu efstir í C1-riðli Íslandsmótsins og tryggðu með því þátttöku í úrslitakeppninni. Í gær, laugardaginn 1. september, hófst C - úrslitakeppnin sem er útsláttarkeppni. Keflavík lék gegn Tindastól og var leikið á Skallagrímsvelli í Borgarnesi og var um hörkuleik að ræða við heldur votar aðstæður. Róbert Örn Ólafsson og Gauti Þormar settu sitthvort markið fyrir Keflavík í fyrri hálfleik gegn einu marki Tindastólsdrengja og stóðu leikar 2 - 1 fyrir okkar menn í hálfleik. Allt leit út fyrir að það yrðu lokatölur leiksins en þegar 2 mín. lifðu leiks náðu Stólarnir að jafna og þurfti því að grípa til framlengingar. Ekkert var skorað í framlengingunni og réðust úrslit leiksins því í vítaspyrnukeppni. Viktor Gíslason, Róbert Örn Ólafsson, Bojan Stefán Ljubicic og Birgir Ólafsson skoruðu fyrir Keflavík en það var Árni Freyr Ásgeirsson markvörður Keflavíkur sem var hetja dagsins en hann gerði sér lítið fyrir og varði tvær vítaspyrnur Norðanmann. Keflvíkingar fögnuðu því sætum sigri 6 - 3 og leika til úrslita í C - úrslitum gegn Hetti á Aðalvellinum í Keflavík kl. 14:00 í dag (sunnudaginn 2. september). Liðið sem sigrar í þeim leik kemst í 4 liða úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn. Nú mæta allir á Aðalvöllinn í dag og hvetja drengina til sigurs. ÁFRAM KEFLAVÍK !
Árni Freyr Ásgeirsson var hetja Keflavíkur í gær og varði tvær vítaspyrnur.
Þessi mynd af Árna er tekin þegar Árni var í 5. flokki!