Fréttir

Úrslitakeppni hjá 3. flokki kvenna
Knattspyrna | 10. september 2013

Úrslitakeppni hjá 3. flokki kvenna

Sameiginlegt lið Keflavíkur, Reynis og Víðis í 3. flokki kvenna leikur í undanúrslitum Íslandsmótsins á fimmtudag.  Lið RKV varð í 2. sæti í B-deild Íslandsmótsins í sumar og tryggði sér þar með sæti í úrslitakeppni mótsins en þar leika tvo efstu lið A- og B-deildar.  Okkar stúlkur leika gegn Breiðabliki á fimmtudaginn kl. 17:30 og fer leikurinn fram á Kópavogvelli.  Í hinum undanúrslitaleiknum leika Selfoss/Hamar/Ægir og FH.  Sigurliðin í þessum leikjum leika svo til úrslita á sunnudaginn.

Myndin með fréttinni er úr síðasta leik RKV í deildarkeppninni, gegn Tindastóli/Hvöt.  Myndin er fengin að láni af vef Feykis.