Úrslitaleikur hjá 4. flokki á laugardag
Það verður stórleikur á laugardaginn þegar Keflavík og Fjölnir leika um Íslandsmeistaratitilinn í 4. flokki karla. Leikurinn verður á Nettó-vellinum kl. 12:00. Við hvetjum alla stuðningsmenn Keflavíkur að mæta á völlinn og styðja strákana.
Drengirnir hafa staðið sig frábærlega í sumar og urðu m.a. ReyCup-meistarar. Liðið lék í undanúrslitum Íslandsmótsins um síðustu helgi og vann alla þrjá leiki sína í riðlinum. Keflavík tryggði sér með því sæti í úrslitaleiknum gegn Fjölni sem vann hinn undanúrslitariðilinn.
Þjálfarar 4. flokks eru þeir Jóhann Birnir Guðmundsson og Arngrímur Jóhann Ingimundarson.