Fréttir

Knattspyrna | 9. september 2011

Úrslitaleikur hjá 4. flokki í dag

Föstudaginn 9. september leika Keflavík og Breiðablik til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í 4. flokki karla.  Leikurinn fer fram á Nettó-vellinum í Keflavík og hefst kl. 17:00.  Keflavík tryggði sér sæti í úrslitaleiknum með því að sigra í milliriðli þar sem okkar piltar unnu Stjörnuna og KR og gerði jafntefli við BÍ/Bolungarvík.  Við hvetjum stuðningsmenn til að mæta á völlinn og hvetja piltana til dáða.