Úrslitaleikurinn hjá stelpunum á þriðjudaginn
Keflavík tryggði sér sæti í úrslitaleik Lengjubikarsins með sigri á HK/Víking í undanúrslitum á laugardaginn. Úrslitaleikurinn gegn Haukum fer fram á heimavelli Hafnarfjarðarliðsins, Ásvöllum, þriðjudaginn 3. maí kl. 19:30.
Leikurinn verður ekki í beinni sjónvarpsútsendingu og því er fólk sérstaklega hvatt til að gera sér leið á Ásvelli og hvetja stúlkurnar til sigurs.
ÁFRAM KEFLAVÍK.