Fréttir

Knattspyrna | 29. desember 2007

Úrval og lágt verð hjá Flugeldasölu Keflavíkur

Flugeldasala Knattspyrnudeildar Keflavíkur er nú í fullum gangi og hefur aldrei verið öflugri.  Flugeldasalan er á Iðavöllum 7 þar sem æfingasvæði félagsins er.  Boðið er upp á mikið úrval og við vekjum athygli á því að verðið er jafnlágt eða lægra en hjá einkaaðilum á markaðinum.  Við bendum sérstaklega á tertur sem eru á tilboði á 20.000 og hina vinsælu krakkapakka sem kosta aðeins 1.500 kr.  Það er því full ástæða til að skreppa upp á Iðavelli, kaupa flugeldana á góðu verði og styrkja jafnframt knattspyrnufólk í Keflavík.  Flugeldasalan er opin á laugardag og sunnudag kl. 10:00 - 22:00 og síðan á gamlársdag kl. 10:00 - 16:00.


Harðsnúið afgreiðslulið er við öllu búið eins og sjá má.


Móri, Glámur og Þorgeirsboli!  Terturnar kosta aðeins 20.000 kr.


Krakkapakkarnir eru á tilboði á 1.500 kr.


Rakettur af öllum stærðum og gerðum; eitthvað fyrir alla!


Lagerstjórinn ákveðinn á svip.