Fréttir

Knattspyrna | 27. maí 2011

Útileikur gegn Haukum í bikarnum

Okkar menn mæta Haukum í 16 liða úrslitum Valitor-bikarsins og fer leikurinn fram á heimavelli Hauka.  Keflavík tryggði sér sætið með 5-0 sigri á Hetti í 32 liða úrslitunum.  Haukar unnu KF 2-0 í sömu umferð en höfðu áður unnið Gróttu með sömu markatölu í 2. umferð keppninnar.  Leikirnir í 16 liða úrslitunum fara fram 19.-21. júní en þó gæti það breyst eftir því hvernig U-21 árs landsliðinu gengur í Evrópukeppninni.  Leikurinn gegn  Haukum verður á Ásvöllum sunnudaginn 19. júní kl. 19:15.

Keflavik og Haukar hafa tvisvar áður mæst í bikarkeppninni og fóru leikirnir báðir fram á heimavelli Hauka sem þá léku á Hvaleyraholti.  Fyrri leikurinn var árið 1990 og lauk með 2-0 sigri Keflavíkur þar sem Óli Þór Magnússon og Marco Tanasic skoruðu fyrir Keflavík.  Liðin mættust svo aftur árið 1992 og þá vann Keflavík 5-0.  Óli Þór var aftur á skotskónum og skoraði þrennu en Kjartan Einarsson og Gunnar Magnús Jónsson skoruðu einnig í þeim leik.