Fréttir

Valur - Keflavík á fimmtudag kl. 19:15
Knattspyrna | 30. maí 2012

Valur - Keflavík á fimmtudag kl. 19:15

Fimmtudaginn 31. maí heimsækja okkar menn Val í 6. umferð Pepsi-deildarinnar.  Leikurinn fer fram á Vodafone-vellinum að Hlíðarenda og hefst kl. 19:15.  Fyrir leikinn er Keflavík í 5.-6. sæti deildarinnar með 7 stig en Valur er í 7.-9. sæti með sex stig.  Liðin eru því á svipuðum slóðum í deildinni og það má búast við jöfnum og spennandi leik.  Dómari leiksins verður Erlendur Eiríksson, aðstoðardómarar þeir Smári Stefánsson og Sverrir Gunnar Pálmason og eftirlitsmaður KSÍ er Jón Sigurjónsson.

Keflavík og Valur hafa leikið 89 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958 þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli.  Þess má geta að Sigurður Albertsson skoraði mark Keflavíkur í þeim leik.  Keflavík hefur unnið 30 leikjanna, Valur hefur hins vegar sigrað 33 sinnum en 26 leikjum hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 132-134, Val í hag.  Stærsti sigur Vals í leikjum liðanna var 7-1 sigur á Hlíðarenda árið 1987 og það er jafnframt mesti markaleikur sem liðin hafa háð ásamt 4-4 jafntefli í Keflavík árið 1999 og 5-3 sigri Keflavíkur árið 2008.  Stærstu sigrar Keflavíkur hafa verið með fjögurra marka mun, tveir 4-0 sigrar árið 1973 og 5-1 sigur árið 1964.  Fjórir leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Val; Guðmundur Steinarsson hefur skorað fjögur mörk og þeir Ísak Örn Þórðarson, Jóhann Birnir Guðmundsson og Magnús Þorsteinsson hafa skorað eitt mark hver.

Liðin hafa mæst sex sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1970 en síðast árið 1997.  Keflavíkur hefur unnið 4 leiki en Valur 2; markatalan þar er 13-8 fyrir Keflavík.  Jóhann B. Guðmundsson hefur skorað þrjú bikarmörk gegn Val en þau komu öll í 5-1 sigri í framlengdum leik árið 1997.  Leikurinn var í 8 liða úrslitum en Keflavík varð einmitt bikarmeistari þetta ár.

Liðin mættust tvívegis í Pepsi-deildinni í fyrra.  Valsmenn unnu fyrri leikinn á Nettó-vellinum 2-0,  Guðjón Pétur Lýðsson og Pól Jóhannus Justinussen skoruðu mörk Vals.  Keflavík vann hins vegar seinni leikinn á Vodafone-vellinum og þar skoraði Ísak Örn Þórðarson eina mark leiksins.

Keflavík hefur gengið vel í útileikjum gegn Val undanfarin ár og hefur ekki tapað síðustu tíu útileikjum gegn Hlíðarendapiltum.  Keflavík hefur runnið fjóra þessara leikja og á árunum 2001 til 2009 gerðu liðin sex jafntefli í röð á Hlíðarenda.  Síðasta útitapið gegn Val var árið 1997.

Nokkrir leikmenn hafa leikið fyrir Keflavík og Val í gegnum árin eins og Guðmundur Viðar Mete, Jakob Már Jónharðsson, Adolf Sveinsson, Bjarni Sigurðsson, Sigurjón Kristjánsson og Hafsteinn Guðmundsson.  Nú er Hörður Sveinsson í herbúðum Vals.  Þá hafa þessi lið ekki síður haft sömu þjálfara en þjálfari Valsmanna nú er Kristján Guðmundsson, fyrrverandi þjálfari okkar.  Áður höfðu Óli B. Jónsson, Guðbjörn Jónsson, Ian Ross, Ingi Björn Albertsson og Willum Þór Þórsson þjálfað bæði lið.

Úrslit í leikjum Vals og Keflavíkur á heimavelli Valsmanna hafa orðið þessi undanfarin ár:

2011 Valur - Keflavík 0-1 Ísak Örn Þórðarson
2010 Valur - Keflavík 0-2 Guðjón Árni Antoníusson
Brynjar Örn Guðmundsson
2009 Valur - Keflavík 2-2 Haukur Ingi Guðnason
Jóhann B. Guðmundsson
2008 Valur - Keflavík 1-1 Hólmar Örn Rúnarsson
2007 Valur - Keflavík 2-2 Þórarinn Kristjánsson
Baldur Sigurðsson
2006 Valur - Keflavík 0-0  
2005 Valur - Keflavík 0-0  
2001 Valur - Keflavík 1-1 Þórarinn Kristjánsson
1999 Valur - Keflavík 2-3 Gunnar Oddsson
Þórarinn Kristjánsson
Kristján Brooks 
1998 Valur - Keflavík 0-1 Guðmundur Steinarsson