Valur - Keflavík á föstudag kl. 19:00
Föstudaginn 4. mars er komið að leik í Lengjubikarnum en þá mætum við Valsmönnum. Leikurinn verður í Egilshöll og hefst kl. 19:00. Dómari leiksins verður Sigurður Óli Þórleifsson og aðstoðardómarar hans þeir Smári Stefánsson og Hörður Aðalsteinsson.
Þetta verður annar leikur okkar manna í Lengjubikarnum þetta árið en í þeim fyrsta vannst sigur á ÍBV. Valsmenn hafa leikið tvo leiki, sigrað Hugin og gert jafntefli við Fram.
Miðvikudaginn 9. mars er svo komið að heimaleik en þá koma Stjörnumenn í heimsókn í Reykjaneshöllina.
Byrjunarliðið gegn ÍBV. Jón Örvar tók myndina.