Valur - Keflavík á mánudag kl. 19:15
Mánudaginn 27. júlí heimsækja okkar menn Val í 14. umferð Pepsi-deildarinnar. Leikurinn fer fram á Vodafone-vellinum að Hlíðarenda og hefst kl. 19:15. Fyrir leikinn er Valur í 6. sæti deildarinnar með 19 stig en Keflavík í 3.-5. sæti með 23 stig. Bæði lið þurfa auðvitað á stigunum að halda enda er fjöldi liða í einum hnapp og baráttan um Evrópusæti hörð. Dómari leiksins verður vinur okkar Kristinn Jakobsson, aðstoðardómarar þeir Sigurður Óli Þórleifsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson og eftirlitsmaður KSÍ er Sigurður Hannesson.
Keflavík og Valur hafa leikið 84 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958 þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli. Þess má geta að Sigurður Albertsson skoraði mark Keflavíkur í þeim leik. Keflavík hefur unnið 27 leikjanna, Valur hefur hins vegar sigrað 32 sinni en 25 leikjum hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 124-131, Val í hag. Stærsti sigur Vals í leikjum liðanna var 7-1 sigur á Hlíðarenda árið 1987 og það er jafnframt mesti markaleikur sem liðin hafa háð ásamt 4-4 jafntefli í Keflavík árið 1999 og 5-3 sigri Keflavíkur á síðasta sumri. Stærstu sigrar Keflavíkur hafa verið með fjögurra marka mun, tveir 4-0 sigrar árið 1973 og 5-1 sigur árið 1964. Sjö leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Val; Guðmundur Steinarsson hefur skorað fjögur mörk, Haukur Ingi Guðnason þrjú, Guðjón Árni Antoníusson, Hörður Sveinsson og Símun Samuelsen tvö hver og þeir Magnús Þorsteinsson, Stefán Örn Arnarson og Hólmar Örn Rúnarsson hafa skorað eitt mark hver.
Liðin hafa mæst sex sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1970 en síðast árið 1997. Keflavíkur hefur unnið 4 leiki en Valur 2; markatalan þar er 13-8 fyrir Keflavík. Jóhann B. Guðmundsson hefur skorað þrjú bikarmörk gegn Val en þau komu öll í 5-1 sigri í framlengdum leik árið 1997. Leikurinn var í 8 liða úrslitum en Keflavík varð einmitt bikarmeistari þetta ár.
Liðin mættust í 3. umferð Pepsi-deildarinnar fyrr í sumar og fór sá leikur fram á Sparisjóðsvellinum. Keflavík vann þá öruggan 3-0 sigur þar sem Guðjón Árni Antoníusson kom Keflavík yfir og Hörður Sveinsson bætti svo tveimur mörkum við.
Keflavík hefur gengið vel í útileikjum gegn Val undanfarin ár og hefur ekki tapað síðustu sjö útileikjum gegn Hlíðarendapiltum. Síðasta útitapið gegn Val var árið 1997 en síðustu fimm leikjum liðanna á heimavelli Valsmanna hefur lokið með jafntefli.
Úrslit í leikjum Vals og Keflavíkur á heimavelli Valsmanna hafa orðið þessi undanfarin ár:
2007 |
Valur - Keflavík |
1-1 | Hólmar Örn Rúnarsson | ||
2007 |
Valur - Keflavík |
2-2 | Þórarinn Kristjánsson Baldur Sigurðsson | ||
2006 |
Valur - Keflavík |
0-0 | |||
2005 |
Valur - Keflavík |
0-0 | |||
2001 |
Valur - Keflavík |
1-1 | Þórarinn Kristjánsson | ||
1999 |
Valur - Keflavík |
2-3 | Gunnar Oddsson Þórarinn Kristjánsson Kristján Brooks | ||
1998 |
Valur - Keflavík |
0-1 | Guðmundur Steinarsson | ||
1997 |
Valur - Keflavík |
2-1 | Eysteinn Hauksson | ||
1996 |
Valur - Keflavík |
2-1 | Eysteinn Hauksson | ||
1995 |
Valur - Keflavík |
0-0 | |||
1994 |
Valur - Keflavík |
1-1 | Marco Tanasic |