Valur - Keflavík á sunnudag kl. 17:00
Sunnudaginn 11. september heimsækja okkar menn Val í 18. umferð Pepsi-deildarinnar. Leikurinn fer fram á Vodafone-vellinum að Hlíðarenda og hefst kl. 17:00. Fyrir leikinn eru Valsmenn í góðri stöðu í 4. sæti með 29 stig en Keflavík er í 10. sætinu með 17 stig, reyndar eftir 16 leiki. Það er því til mikils að vinna og okkar menn þurfa að rífa sig upp eftir rýra uppskeru úr síðustu leikjum. Dómari leiksins verður Þorvaldur Árnason, aðstoðardómarar þeir Áskell Þór Gíslason og Magnús Jón Björgvinsson og eftirlitsmðaur KSÍ er Þórður Georg Lárusson.
Keflavík og Valur hafa leikið 88 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958 þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli. Þess má geta að Sigurður Albertsson skoraði mark Keflavíkur í þeim leik. Keflavík hefur unnið 29 leikjanna, Valur hefur hins vegar sigrað 33 sinnum en 26 leikjum hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 131-134, Val í hag. Stærsti sigur Vals í leikjum liðanna var 7-1 sigur á Hlíðarenda árið 1987 og það er jafnframt mesti markaleikur sem liðin hafa háð ásamt 4-4 jafntefli í Keflavík árið 1999 og 5-3 sigri Keflavíkur árið 2008. Stærstu sigrar Keflavíkur hafa verið með fjögurra marka mun, tveir 4-0 sigrar árið 1973 og 5-1 sigur árið 1964. Sex leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Val; Guðmundur Steinarsson hefur skorað fjögur mörk, Guðjón Árni Antoníusson þrjú og þeir Andri Steinn Birgisson, Brynjar Örn Guðmundsson, Jóhann B. Guðmundsson og Magnús Þorsteinsson hafa skorað eitt mark hver.
Liðin hafa mæst sex sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1970 en síðast árið 1997. Keflavíkur hefur unnið 4 leiki en Valur 2; markatalan þar er 13-8 fyrir Keflavík. Jóhann B. Guðmundsson hefur skorað þrjú bikarmörk gegn Val en þau komu öll í 5-1 sigri í framlengdum leik árið 1997. Leikurinn var í 8 liða úrslitum en Keflavík varð einmitt bikarmeistari þetta ár.
Liðin mættust fyrrr í sumar á Nettó-vellinum og þá unnu Valsmenn 2-0. Guðjón Pétur Lýðsson og Pól Jóhannus Justinussen skoruðu mörk Vals.
Keflavík hefur gengið vel í útileikjum gegn Val undanfarin ár og hefur ekki tapað síðustu níu útileikjum gegn Hlíðarendapiltum. Kefla´vik hefu runnið þrjá þessar leikja og á árunum 2001 til 2009 gerðu liðin sex jafntefli í röð á Hlíðarenda. Síðasta útitapið gegn Val var árið 1997.
Nokkrir leikmenn hafa leikið fyrir Keflavík og Val í gegnum árin eins og Guðmundur Viðar Mete, Jakob Már Jónharðsson, Adolf Sveinsson, Bjarni Sigurðsson, Sigurjón Kristjánsson og Hafsteinn Guðmundsson. Fyrir þetta tímabil fór svo Hörður Sveinsson frá okkur til Vals. Þá hafa þessi lið ekki síður haft sömu þjálfara en Willum Þór þjálfaði auðvitað Val áður en hann kom til Keflavíkur og þjálfari Valsmanna nú er Kristján Guðmundsson, fyrrverandi þjálfari okkar. Áður höfðu Óli B. Jónsson, Guðbjörn Jónsson, Ian Ross og Ingi Björn Albertsson þjálfað bæði lið.
Úrslit í leikjum Vals og Keflavíkur á heimavelli Valsmanna hafa orðið þessi undanfarin ár:
2010 |
Valur - Keflavík |
0-2 | Guðjón Árni Antoníusson Brynjar Örn Guðmundsson | ||
2009 |
Valur - Keflavík |
2-2 | Haukur Ingi Guðnason Jóhann B. Guðmundsson | ||
2008 |
Valur - Keflavík |
1-1 | Hólmar Örn Rúnarsson | ||
2007 |
Valur - Keflavík |
2-2 | Þórarinn Kristjánsson Baldur Sigurðsson | ||
2006 |
Valur - Keflavík |
0-0 | |||
2005 |
Valur - Keflavík |
0-0 | |||
2001 |
Valur - Keflavík |
1-1 | Þórarinn Kristjánsson | ||
1999 |
Valur - Keflavík |
2-3 | Gunnar Oddsson Þórarinn Kristjánsson Kristján Brooks | ||
1998 |
Valur - Keflavík |
0-1 | Guðmundur Steinarsson | ||
1997 |
Valur - Keflavík |
2-1 | Eysteinn Hauksson |