Valur - Keflavík á sunnudag kl. 17:00
Eftir viðburðaríkt landsleikjahlé fer Pepsi-deildin aftur af stað og nú er komið að 19. umferð. Okkar menn heimsækja Val og við vekjum athygli á því að leikurinn verður á Laugardalsvelli og hefst kl. 17:00. Fyrir leikinn er Keflavík í neðsta sæti deildarinnar með sjö stig en Valsmenn eru í 4. sætinu með 29 stig.
Dómari leiksins verður Þorvaldur Árnason, aðstoðardómarar þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Andri Vigfússon og eftirlitsmaður KSÍ er Ingi Jónsson.