Fréttir

Valur - Keflavík á sunnudag kl. 19:15
Knattspyrna | 25. maí 2013

Valur - Keflavík á sunnudag kl. 19:15

Sunnudaginn 26. maí heimsækja okkar menn Val í 5. umferð Pepsi-deildarinnar.  Leikurinn fer fram á Vodafone-vellinum að Hlíðarenda og hefst kl. 19:15.  Fyrir leikinn er Keflavík í 8. sæti deildarinnar með 4 stig en Valur er í 3. sæti með átta stig.  Það má því lítið út af bregða og það má reikna með jöfnum og spennandi leik.  Dómari leiksins verður Garðar Örn Hinriksson, aðstoðardómarar þeir Einar Sigurðsson og Ásgeir Þór Ásgeirsson og eftirlitsmaður KSÍ er Þórður Georg Lárusson.

Keflavík og Valur hafa leikið 91 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958 þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli.  Þess má geta að Sigurður Albertsson skoraði mark Keflavíkur í þeim leik.  Keflavík hefur unnið 30 leikjanna, Valur hefur hins vegar sigrað 35 sinnum en 26 leikjum hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 132-142, Val í hag.  Stærsti sigur Vals í leikjum liðanna var 7-1 sigur á Hlíðarenda árið 1987 og það er jafnframt mesti markaleikur sem liðin hafa háð ásamt 4-4 jafntefli í Keflavík árið 1999 og 5-3 sigri Keflavíkur árið 2008.  Stærstu sigrar Keflavíkur hafa verið með fjögurra marka mun, tveir 4-0 sigrar árið 1973 og 5-1 sigur árið 1964.  Fjórir leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Val; Hörður Sveinsson hefur skorað fjögur mörk og þeir Ísak Örn Þórðarson, Jóhann Birnir Guðmundsson og Magnús Þorsteinsson hafa skorað eitt mark hver.

Liðin hafa mæst sex sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1970 en síðast árið 1997.  Keflavíkur hefur unnið 4 leiki en Valur 2; markatalan þar er 13-8 fyrir Keflavík.  Jóhann B. Guðmundsson hefur skorað þrjú bikarmörk gegn Val en þau komu öll í 5-1 sigri í framlengdum leik árið 1997.  Leikurinn var í 8 liða úrslitum en Keflavík varð einmitt bikarmeistari þetta ár.

Okkar menn riðu ekki feitum hesti frá viðureignum sínum gegn Val í Pepsi-deildinni í fyrra.  Valsmenn unnu báða leikina 4-0.  Í fyrri leiknum að Hlíðarenda skoraði Kolbeinn Kárason tvívegis og þeir Matthías Guðmundsson og Kristján Freyr Sigurðsson eitt mark hvor.  Í seinni leiknum á Nettó-vellinum skoraði Kolbeinn aftur tvö mörk og Indriði Áki Þorláksson gerði hin tvö mörkin.

Fram að leiknum í fyrra hafði Keflavík gengið vel í útileikjum gegn Val og ekki tapað tíu útileikjum í röð gegn Hlíðarendapiltum.  Keflavík vann fjóra þessara leikja og á árunum 2001 til 2009 gerðu liðin sex jafntefli í röð á Hlíðarenda.

Nokkrir leikmenn hafa leikið fyrir Keflavík og Val í gegnum árin og í vetur gekk Halldór Kristinn Halldórsson til liðs við okkur frá Val..  Áður höfðu m.a. Hörður Sveinsson, Guðmundur Viðar Mete, Jakob Már Jónharðsson, Adolf Sveinsson, Bjarni Sigurðsson, Sigurjón Kristjánsson og Hafsteinn Guðmundsson leikið fyrir bæði liðin.  Þá hafa þessi lið ekki síður haft sömu þjálfara en Óli B. Jónsson, Guðbjörn Jónsson, Ian Ross, Ingi Björn Albertsson, Willum Þór Þórsson og Kristján Guðmundsson hafa allir þjálfað bæði lið.

Úrslit í leikjum Vals og Keflavíkur á heimavelli Valsmanna hafa orðið þessi undanfarin ár:

2012 Valur - Keflavík 4-0  
2011 Valur - Keflavík 0-1 Ísak Örn Þórðarson
2010 Valur - Keflavík 0-2 Guðjón Árni Antoníusson
Brynjar Örn Guðmundsson
2009 Valur - Keflavík 2-2 Haukur Ingi Guðnason
Jóhann B. Guðmundsson
2008 Valur - Keflavík 1-1 Hólmar Örn Rúnarsson
2007 Valur - Keflavík 2-2 Þórarinn Kristjánsson
Baldur Sigurðsson
2006 Valur - Keflavík 0-0  
2005 Valur - Keflavík 0-0  
2001 Valur - Keflavík 1-1 Þórarinn Kristjánsson
1999 Valur - Keflavík 2-3 Gunnar Oddsson
Þórarinn Kristjánsson
Kristján Brooks