Fréttir

Knattspyrna | 10. janúar 2008

Vantar húsgögn og búsahöld

Nú fer sá árstími í hönd að Keflavík er að styrkja sig og bæta við sig leikmönnum.  Því er nauðsynlegt að „mubla“ upp íbúðirnar fyrir væntanlega leikmenn.  Við biðjum því stuðningsmenn og velunnara Keflavíkur vinsamlegast um að kanna hvort að í geymslum og bílskúrum liggi ekki ónotaðir hlutir sem gætu nýst okkur hjá Knattspyrnudeildinni.  Það er eitt og annað sem gæti nýst okkur en meðal annars vantar þvottavél, ísskáp, skrifborð og margt annað smálegt, allt frá skúringafötu og brauðrist upp í sófasett.  Þeir sem eru aflögufærir með þessa hluti eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við skrifstofu Knattspyrnudeildar í síma 421-5388 eða á kef-fc@keflavik.is.  Flest kemur til greina og er jafnvel mögulegt að sækja hlutina eða viðkomandi gætu komið þessu til okkar með öðrum hætti.

Knattspyrnudeild Keflavíkur