Veglegur styrkur frá Geysi Green Energy
Knattspyrnudeild Keflavíkur var eitt af þremur félögum í Reykjanesbæ sem fengu veglegan styrk frá Geysi Green Energy í vikunni. Knattspyrnudeildin, Blái herinn og Íþróttafélagið Nes fengu öll eina milljón sem kemur sér örugglega vel í starfsemi þessara öflugu félaga. Geysir Green Energy veitir þessa styrki í tilefni þess að félagið hóf nýlega starfsemi í Reykjanesbæ en fyrirtækið stefnir að fjárfestingum í verkefnum tengdum sjálfbærri orkuframleiðslu. Við þökkum þennan veglega styrk sem nýtist að sjálfsögðu vel í því viðamikla starfi sem er framundan í sumar.
Á myndinni eru frá vinstri: Auður Nanna Baldvinsdóttir Geysi Green, Lára Ingimundardóttir frá Íþróttafélaginu Nesi, Tómas Knútsson frá Bláa hernum, Rúnar V. Arnarson formaður Knattspyrnudeildar Keflavíkur og Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysir Green Energy. (Mynd: elg / Víkurfréttir)