Vel heppnuð skemmtikvöld
Herra- og Konukvöld Knattspyrnudeildar voru haldin s.l. föstudagskvöld. Herrarnir skemmtu sér í Oddfellow-salnum og konurnar í KK-salnum. Knattspyrnudeildin vill þakka öllum þeim konum og herrum sem mættu og studdu þannig við rekstur deildarinnar. Einnig þökkum við þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem lögðu hönd á plóg til að gera þetta mögulegt.
Myndirnar frá konukvöldinu tók Hrefna Höskuldsdóttir en myndirnar á herrakvöldi tók Jón Örvar Arason.